top of page
  • Writer's pictureÞorsteinn Hjaltason

Ellefu hengdir í Sölvagili á Vaðlaheiði

Updated: Jan 26, 2022

Í 11. bindi Íslenskra fornbréfa bls. 403-405 segir frá 12 manna dómi sem árið 1545 kvað upp dóm yfir 15 mönnum, sem grunaðir voru um þjófnað. Hafði sá orðrómur komist á kreik að þeir stælu sauðum og öðrum peningum. Þótti það ekki að fullu sannað en líkur voru til að þessir 15 menn væru sekir. Til þess að slíkur þjófnaður legðist ekki í vana var þessum mönnum dæmdur sjöttareiður. Áttu þá 6 menn að sverja sakleysi viðkomandi og væri hann þá laus allra mála en annars sekur. Af þeim 15 sem sakaðir voru varð 11 eiðsfall og voru hengdir í Gálgagjá árið 1546, sbr. annála Boga á Staðarfelli. Þórður Eyjólfsson ritaði um þenna dóm og spurði Friðjón bæjarfógeta Skarphéðinsson um Gálgagjá og hann sagði honum að það væri þekkt örnefni. Gálgagjá væri í Sölvagili í austanverðri Vaðlaheiði, "og ganga enn nyrðra sagnir um aftöku þjófa þar." Sölvagil er næsta gil sunnan Steinkirkju í Fnjóskadal. Í því er Sölvagilsfoss.


Sölvagilsfoss

Göngustígurinn yfir Bíldsárskarðið liggur yfir Sölvá áður en farið er fyrir Axlir. Eftir að Sölváin hefur steypt sér um Sölvagilsfoss ofan í Sölvagilið heitir hún Sölvagilsá. Þegar fyrir Axlir er komið liggur vegurinn beint í suður niður hlíðina að Grjótá þar sem hliðið er. Einn sakamanna var Sölvi Guðmundsson og heitir gilið e.t.v. eftir honum.



Ari Jónsson (1508-1550) á Möðrufelli í Eyjafirði hafði þá konungsins sýslu og umboð í Vaðlaþingi og kallaði saman dóminn. Ari var svo hálshöggvinn nokkrum árum síðar eða 7. nóvember árið 1550 ásamt Birni bróður sínum, sem var prestur á Melstað í Miðfirði, og föður sínum, Jóni Arasyni (1484-1550) Hólabiskupi, sem var síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi fyrir siðaskipti.


Heimildir:

Ellefta bindi Íslenskra Fornbréfa bls. 403-405

Þórður Eyjólfsson: Lagastafir bls. 68-69, Reykjavík 1967. (birtist fyrst í Afmælisriti Ólafs Lárussonar, Reykjavík 1955).


Jón Arason biskup. Mósaíkmynd á vegg yfir gröf hans í turni Hóladómkirkju.


64 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page